14.01.2015

Sundfélagið Óðinn fær gjafir

Myndavélabúnaður afhentur
Myndavélabúnaður afhentur

Þann 14. janúar afhenti Gauti Hallsson, framkvæmdastjóri Dexta, Ragnheiði Runólfsdóttur, yfirþjálfara hjá Sundfélaginu Óðni á Akureyri, iPad og vatnshelda myndavél.

Um er að ræða myndavélabúnað til að auðvelda tilsögn og geta sýnt sundiðkendum betur réttar eða rangar hreyfingar við iðkun íþróttarinnar, hvort sem er ofan vatns eða í kafi.

Heildarverðmæti gjafarinnar er kr. 210.663.

Búnaðurinn sem um ræðir er: a) GoPro Hero 3+, Black Edition, b) 2 × iPad Mini 3, 64 GB, 4G, Wi-Fi, ásamt fylgihlutum.

Allar fréttir