Um Dexta
Dexta orkutæknilausnir ehf. á Akureyri sérhæfir sig í hönnun og sölu á tæknilausnum og búnaði fyrir orkuflutningsferla (hitun og kælingu), varmaendurnýtingu og aðra orku-, iðnaðar- og framleiðsluferla.
Dexta býður upp á sérfræðiráðgjöf til lágmörkunar á orku- og vatnsnotkun fyrirtækja, til að gera rekstur þeirra umhverfisvænni, hagkvæmari og samkeppnishæfari, eða með öðrum orðum sjálfbærari.
Dexta hefur unnið með fiskþurrkunarfyrirtækjum frá stofnun árið 2005. Þar er um að ræða hönnun þurrkferla, varmaendurnýtingarkerfa og sölu á búnaði og heildarlausnum, þar með talið lyktareyðingu, bæði á Íslandi og erlendis.
Undanfarin ár hefur Dexta útvegað töluvert af búnaði í fiskeldi á landi: dælur, varmaskipta til varmaendurnýtingar, hreinsibúnað fyrir plötuvarmaskipta í notkun, sjálfhreinsandi síur, súrefniskerfi, UV-ljós og loka ásamt drifbúnaði.
Í stuttu máli
- 2005Dexta orkutæknilausnir ehf. stofnað á Akureyri
- 2013Samið um hönnun færibandaþurrkara hjá Löngu í Vestmannaeyjum
- 2014Þurrkarinn hjá Löngu gangsettur
- 2015Sundfélagið Óðinn á Akureyri fær myndavélabúnað að gjöf
Starfsfólk

Fréttir
Allar fréttir
Sundfélagið Óðinn fær gjafir
Þann 14. janúar afhenti Gauti Hallsson, framkvæmdastjóri Dexta, Ragnheiði Runólfsdóttur, yfirþjálfara hjá Sundfélaginu Óðni á Akureyri, iPad og vatnshelda myndavél.

Færibandaþurrkari hjá Löngu í Vestmannaeyjum
Tekinn hefur verið í notkun færibandaþurrkari hjá Löngu í Vestmannaeyjum, sem hannaður er af Dexta orkutæknilausnum ehf.

Nýtt útlit heimasíðu Dexta orkutæknilausna ehf.
Nýtt útlit heimasíðunnar var sett í loftið í dag.
