Forsíða/Lausnir/Fiskþurrkun

Fiskþurrkun

Dexta hefur unnið með fiskþurrkunarfyrirtækjum frá stofnun árið 2005: hönnun þurrkferla, varmaendurnýtingarkerfa og sala á búnaði og heildarlausnum, þar með talið lyktareyðingu, bæði á Íslandi og erlendis.

Svona vinnur færibandaþurrkari

Blaut vara fer inn á efsta bandið og færist niður um fimm bönd á meðan heitt og þurrt loft streymir upp í gegn. Skiptu á milli lokaðs kerfis með varmadælu og opins kerfis með hitaveitu og stilltu loftskiptin.

BLAUT VARA INNVATNSÞVOTTUR12345FORÞURRKAÐ ÚTVarmadælaEIMIRÞÉTTIRK960 kW KÆLINGÚTBLÁSTURÚTILOFTRAKTÞURRT
20%

Einfölduð mynd byggð á færibandaþurrkara Dexta hjá Löngu í Vestmannaeyjum.

Hvað Dexta gerir

Hönnun þurrkferlaHönnun þurrkferla fyrir fiskþurrkunarfyrirtæki, á Íslandi og erlendis.
VarmaendurnýtingarkerfiVarmaendurnýting, t.d. með varmadælu og krossvarmaskiptum eins og hjá Löngu.
Búnaður og heildarlausnirSala á búnaði og heildarlausnum, frá einstökum íhlutum að fullbúnum þurrkara.
LyktareyðingLyktareyðing sem hluti af heildarlausn.
Þurrkaðir hryggir hjá Löngu
Þurrkaðir hryggir. Mynd: Víkingur Smárason

Langa í Vestmannaeyjum

Þurrkarinn er hannaður til að forþurrka um 24 tonn á sólarhring (blaut vara inn) af fiskhryggjum eða fiskbeinum, kolmunna eða sambærilegu hráefni.

Varmadælan afkastar um 960 kW (kæliafköst) og notar til þess um 270 kW af rafmagni. Með krossvarmaskiptum og nýtingu umframvarma verður heildarhagkvæmni orkunýtingar á bilinu COPH = 5,81 til 6,19.

Orkujafnvægi og tæknilýsing

Ertu að skipuleggja þurrkun?

Segðu frá hráefni, afköstum og orkugjafa og fáðu tilboð í hönnun eða búnað.

Fá tilboð