Forsíða/Orkuráðgjöf

Orkuráðgjöf

Dexta býður upp á sérfræðiráðgjöf til lágmörkunar á orku- og vatnsnotkun fyrirtækja, einkum framleiðslufyrirtækja. Þannig er dregið úr kostnaði og sóun, og reksturinn verður umhverfisvænni, hagkvæmari og samkeppnishæfari.

DRAGA ÚR EÐA LÁGMARKA

Orku- og vatnsnotkun

BÆTA EÐA HÁMARKA

Endurnýtingu orku og vatns, nýtni, hagnað og samkeppnishæfni

SEM LEIÐIR TIL

Umhverfisvænni og arðsamari fyrirtækja, ferla og vöru

Sparnaðarreiknir

Algengt er að draga megi á einfaldan hátt úr orku- og vatnsnotkun sem nemur 3–15 %, og um 15–30 % með fjárfestingum sem borga sig á u.þ.b. einu til tveimur árum.

Árlegur kostnaður

Sláðu inn hvað reksturinn greiðir á ári fyrir orku og vatn.

kr.
kr.
kr.
kr.
Samtals á ári13.000.000 kr.
EINFALDAR AÐGERÐIR · 3–15 %390 þús. kr. – 1,95 m.kr.á ári, stundum án teljandi viðbótarkostnaðar
MEÐ FJÁRFESTINGUM · 15–30 %1,95 m.kr. – 3,90 m.kr.á ári, fjárfestingar sem borga sig á u.þ.b. einu til tveimur árum
FORATHUGUN · 350–500 ÞÚS. KR.6,5 – 15,4 mán.endurgreiðslutími forathugunar miðað við 3–5 % lágmarkssparnað (390 þús. kr. – 650 þús. kr. á ári)
Samkvæmt viðmiði Dexta ættu fyrirtæki sem greiða um og yfir 10 milljónir á ári fyrir vatn, orku og eldsneyti að láta skoða fyrirtækið og kerfin í heild sinni.

Gróf áætlun byggð á almennum viðmiðum Dexta, ekki tilboð.

Óska eftir forathugun

Endurbætur og sparnaður nást með einu eða blöndu af eftirfarandi

Frá einföldustu aðgerðinni til þeirrar umfangsmestu.

  1. 1Einfaldlega uppfæra, bæta eða endurstilla stýringar ferla eða verksmiðju.
  2. 2Bæta búnaði við ferilinn eða starfsemina.
  3. 3Endurhanna ferilinn eða starfsemina að hluta eða í heild sinni.
  4. 4Skipta út núverandi búnaði fyrir nýjan, hagkvæmari eða hentugri búnað.

Af hverju skiptir þetta máli?

Almennt er orkunotkun 5–70 % meiri en fræðilega eða nauðsynlega þarf að vera, af ýmsum ástæðum.

Evrópusambandið ætlast til þess að hvert aðildarlandanna dragi úr orkunotkun sem nemur 1 % árlega á næstu árum, þar sem talið er að um 20–25 % af núverandi orkunotkun sé óþarfa orkunotkun, m.a. vegna lélegra stýringa, gamals óhagkvæms búnaðar, slæmrar eða gamallar hönnunar og tækni eða rangra stillinga (óþarflega heitt eða óþarflega kalt).