Forsíða/Um Dexta/Viðskiptaskilmálar

Viðskiptaskilmálar Dexta

Verð eru alltaf gefin upp án VSK. Tilboð eru trúnaðarmál.

Greiðsluskilmálar

Greiðsluskilmálar eru samkomulag í hverju tilfelli, bæði þegar um reikningsviðskipti og sérstök tilfelli, eins og sérpöntun á búnaði eða heildarlausn, er að ræða.

Sérpantanir og tilboð

  • Almennt skal liggja til grundvallar sérpöntunum samþykkt tilboð ásamt viðbótarskilmálum og tæknilýsingu eða tilvísun í þær.
  • Með greiðslu inn á pöntun skuldbindur kaupandi sig til að kaupa umræddar vörur, enda er ekki um lagervöru að ræða, heldur sérpöntun eða sérsmíði fyrir sérstakar, umbeðnar aðstæður.
  • Pöntun tekur gildi um leið og innborgun hefur borist Dexta.
  • Lokagreiðsla skal almennt greidd fyrir afhendingu á afhendingarstað, sem venjulega er ýmist vöruhús í Reykjavík eða lager Dexta á Akureyri.

Allur búnaður er eign seljanda þar til hann hefur verið að fullu greiddur. Hæstu leyfilegu vextir reiknast á drátt á greiðslum frá eindaga.

Greiðslutrygging

Gagnkvæmt traust, greiðsluframvinda, bankaábyrgð eða annað sem um semst í hverju tilfelli.

Gjaldmiðill

Viðskipti Dexta eru venjulega í íslenskum krónum. Þegar um innfluttar vörur er að ræða er verð háð eða tengt gengi gjaldmiðla (oftast EUR). Ef samningsupphæð er í krónum er almennt miðað við að verð taki breytingum í samræmi við breytingar á gengi umfram ±1 %.

Verð eru alltaf gefin upp án VSK.

Undantekningar

Búnaður og tilboð innihalda aðeins þá hluti sem skilgreindir eru í tilboði og/eða tæknilýsingu og þar af leiðandi ekki:

  • Virðisaukaskatt (VSK).
  • Flutning frá afhendingarstað á uppsetningarstað.
  • Vinnu við uppsetningu, samsetningu eða gangsetningu búnaðar.
  • Sérútfærslu eða sérkröfur um búnað, kælimiðla eða rafkerfi vegna staðbundinna laga og/eða reglna, vegna vinnsluleyfis eða óvenjulegrar notkunar búnaðar.
  • Sérstök eða viðbótareintök af vottorðum.
  • Aukabúnað, annan en talinn er upp sem meðfylgjandi í tilboði eða tæknilýsingu.
  • Vatn, glýkól, kælimiðil, olíur eða önnur efni sem nauðsynleg eru fyrir virkni búnaðarins og fyllt er á kerfi eftir upp- eða samsetningu, nema það sé sérstaklega tekið fram.
  • Aðra hluti sem ekki eru nefndir í tilboðs- og/eða tæknilýsingu.
Afhendingarstaður og afhendingartími

Verð miðast ýmist við afhendingu frá lager Dexta á Akureyri eða frá vöruhúsi í Reykjavík, nema um annað sé samið sérstaklega.

Sérpantaðar vörur hafa breytilegan afhendingartíma, bæði eftir tíma árs og birgjum sem um er að ræða hverju sinni. Auk þess hefur flutningsleið áhrif á bæði flutningstíma og verð. Venjulega er miðað við sjóflutning og lægst mögulega flutningsverð og þar með lengsta flutningstíma, sem oftast er um 2 vinnuvikur frá birgjum erlendis.

Afhendingarskilmálar og ábyrgð búnaðar

Ábyrgð Dexta sem endursöluaðila er aldrei meiri en ábyrgð framleiðanda hverju sinni. Ábyrgð er 12 mánuðir frá afhendingu frá framleiðanda (verksmiðju). Í sumum tilfellum, sem skal þá sérstaklega tiltekið í tilboði eða sérstökum samningi, er hægt að bjóða 18 mánaða ábyrgð frá afhendingu búnaðar frá verksmiðju, að því gefnu að búnaður hafi verið geymdur í umbúðum, við kjöraðstæður og samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda allan þann tíma (þar með talið við flutning). Þá takmarkast ábyrgð hins vegar venjulega við 12 mánuði frá því að búnaður er tekinn í notkun.

Ábyrgð Dexta takmarkast við söluverð vörunnar.

Flutningur á varahlutum á ábyrgðartíma milli framleiðanda og kaupanda er á kostnað kaupanda. Öll vinna, ferðakostnaður og uppihald vegna gangsetningar, kennslu, stillinga, viðgerða eða annarrar þjónustu á uppsetningar- eða ábyrgðartíma er á kostnað kaupanda.

Ábyrgð Dexta og birgja Dexta tekur einungis til og takmarkast við framleiðslugalla, en tekur ekki til slits, tæringar, skemmda á tæringarvörn eða annarra skemmda, hvort heldur sem er vegna eðlilegrar, óeðlilegrar eða rangrar notkunar.

Annað
  • Tilboð eru trúnaðarmál.
  • Tilboð og reikningar eru gerðir með fyrirvara um innsláttar- og samlagningarvillur.
  • Almennt er boðinn rafbúnaður (kraftur) gerður fyrir 24V (ac/dc), 1×230V, 3×230/400V eða 3×400/690V við 50 Hz og gerir kröfu um N + PE, með ásættanlegu (lágu) viðnámi til jarðar (helst undir 2 Ohm), yfirtíðni og spennusveiflur í rafkerfi innan gildandi staðla á hverjum tíma.
  • Það er á ábyrgð kaupanda eða notanda búnaðar að tryggja að aðrar kröfur samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda búnaðar hverju sinni séu uppfylltar.
  • Tiltaka skal sérstaklega ef búnaður skal gerður fyrir aðra spennu eða tíðni.