Sjó- og vatnssíur

Sjálfhreinsandi síur fyrir sjó og vatn, m.a. frá Bernoulli.

Dexta er með umboð fyrir sjálfhreinsandi síur fyrir sjó og vatn frá Bernoulli. Síuhúsin eru fáanleg úr PVC, glertrefjum, ryðfríu stáli og gúmmíklæddu stáli. Síurnar sjálfar eru til m.a. úr AISI-316 og títaníum og eru til með opnun frá 0,1 mm og upp í 2,0 mm.

Þrýstifall í gegnum síurnar er mjög lítið og síurnar halda fullum afköstum þegar þær eru hreinsaðar („bakskolaðar“).

Dexta býður einnig ýmsar aðrar sjálfhreinsandi síur, t.d. frá Hectron og CM-Aqua.

SíuhúsPVC, glertrefjar, ryðfrítt stál, gúmmíklætt stál
SíuefniM.a. AISI-316 og títaníum
Opnun0,1 – 2,0 mm
HreinsunBakskolun, síur halda fullum afköstum

Framleiðendur