Varmaskiptar
Allar gerðir varmaskipta, fyrir vökva og gös, með og án fasabreytingar.
Dexta útvegar allar gerðir af varmaskiptum, bæði fyrir vökva og gös, og með og án fasabreytingar.
Varmaskiptar fyrir t.d.
- Hita- og kælikerfi (lagnakerfi) með vatni og frostlegi.
- Kælikerfi og varmadælukerfi þar sem kælimiðill (vinnumiðill) ýmist eimast eða þéttist.
- Gufukerfi þar sem gufa er þétt og notuð til að hita loft eða vökva.
- Loft, bæði til hitunar (hitaelement) og kælingar og rakaútfellingar (kælielement).
- Varmaendurnýtingu í loftrásum (loftræstikerfum eða iðnaðarferlum), með pörum hitaelementa (run-around-coils), krossvarmaskiptum (recuperators) eða varmahjólum (thermal wheels).
Dexta býður einnig hreinsibúnað til að hreinsa plötuvarmaskipta á meðan þeir eru í notkun (FoulingCure).



